Glær

Veröld mín er fullkomin.
Leið mín er skýr.
Ég losa mig við fortíðina. 
Home
Spennandi námskeið í ferli sjálfsstyrkingar og auknum þroska Print E-mail


 Litir ljóssins / Litaspjald barnsins

 

lenamar_rickie_namskeid Rickie er lærður Aura-Soma® kennari og er með diplóma í ráðgjöf og samskiptum. Hún hefur skrifað bók sem heitir The Child's Palette. Hún hefur haldið námskeið víða í Evrópu, Asíu, USA auk síns heimalands. Síðastliðið sumar hélt hún samskonar námskeið hér á Akureyri. Á námskeiðinu voru einstaklingar með ýmsan bakgrunn m.a. foreldrar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, kennarar, yogakennarar, svæðanuddarar og fleiri. 

Umsögn nokkra nemenda:

Nemandi 1: „Mikil vinna, en er þess virði að leggja á sig. Hjálpaði mér að losa um hindranir svo nú er ég frjálsari".

Nemandi 2: „Dýpkaði þekkinguna á sjálfri mér, hver ég er, hverjar tilfinningar mínar og hvers ég þarfnast í dag".

Nemandi 3: „Það sem stendur upp úr hjá mér er að láta hjartað ráða í stað hugans. Hjálpaði mér að opna hjarta mitt gagnvart öðrum og skilja aðra betur".

Nemandi 4: „Hjálpaði mér að losa út mikla reiði og upplifði mikinn létti. Þetta hjálpaði mér að sjá munstur fjölskyldunnar út frá systkinaröð og sjá betur hvað ég er að takast á við í deginum í dag".

Nemandi 5: „Hjálpaði mér að horfast í augu við djúpan ótta sem ég hef haft í mörg ár. Upplifði mikla gleði og frið eftir námskeiðið".

lenamar_rickie_aura_soma Á námskeiðinu notar hún Aura-Soma® litaflöskur. Nánari upplýsingar um Rickie er að finna á heimasíðu hennar: http://chilli.net.au/~kwanyin/

Á námskeiðinu er m.a. fjallað um:

  • liti og áhrif þeirra
  • fjölskylduna og hlutverk barnsins innan hennar
  • venjur og munstur frá barnæsku sem við erum föst í
  • fjölskyldugerðir og samskipti
  • hvernig við náum tengingu við okkar raunverulega sjálf og öðlumst skilning á því hver við erum

 

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem bera umhyggju fyrir sjálfum sér.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 20.

 

Dagsetning

 

Staður

Kennt verður í húsi Náttúrulækningafélagsins í Kjarnaskógi við Akureyri.

 

Verð

Námskeiðsgjald er 

Staðfestingagjald er 

Innifalið í verði er kaffi/te í pásum og síðdegishressing alla dagana.

Ath. Sum stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsins.

 

Upplýsingar og skráning er hjá

Lenu Otterstedt sími 4621048 eða This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
 

Spennandi námskeið

 Hlökkum til að sjá þig

 
© 2010 Lena Otterstedt - rúnir - aura soma - myndir -
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.