Hvað er reisan?
Reisan byggir á því að losa um gamlar minningar, fyrirgefa og endurstilla viðbrögð okkar.
Reisan er einföld og kraftmikil aðferð sem hefur hjálpað fjölda fólks um allan heim.
Reisan getur opnað dyrnar að innra frelsi, gleði, betri heilsu, óendanlegum möguleikum og heilindum. Reisan hefur með góðum árangri náð að rótum vandans. Allir geta farið í reisu, án tillits til aldurs, trúar eða bakgrunns.
-
- Fortíðin hefur gert þig að því sem þú ert í dag.
- Er möguleiki á því að atburðir úr fortíð hafi markað tilfinningaleg sár innra með þér?
- Ert þú tilbúin að horfast í augu við þessar minningar og sleppa þeim?
- Ert þú tilbúin að hlusta á hvað líkaminn og fortíðin vill segja þér?
- Ert þú tilbúin að horfast í augu við sársaukann í stað þess að flýja hann?
- Ert þú tilbúin að fara þessa leið til að öðlast frelsi, þó þú þurfir að upplifa sársaukann í stað þess að forðast hann?
Smelltu hér ef þú vilt frekar fara yfir á Youtube og horfa á þáttinn í fullri skjástærð. Þar smellirðu á ferninginn við hliðina á þríhyrningnum í neðra hægra horni myndbandsins, til að það fylli upp í allan skjáinn.
Þátturinn er um 40 mínútur og er skipt upp í 5 hluta.
 Brandon Bays Hver er Brandon Bays?
The Journey, eða Reisan eins og hún heitir á íslensku kemur frá Brandon Bays. Árið 1992 fékk Brandon æxli í legið sem var að stærð eins og fótbolti. Sex og hálfri viku seinna var æxlið horfið án aðgerða eða lyfjagjafar. Hvernig hún náði bata er hægt að lesa um í bókinni The Journey sem er til á mörgum tungumálum.
Í dag rekur Brandon og Kevin eiginmaður hennar skóla út um allan heim. Höfuðstöðvar eru í Englandi. Skólinn byggir á námskeiðum sem haldin eru m.a. í USA, Englandi, Vestur-Evrópu, Ástralíu, Suður Afríku, Hong Kong og Ísrael.
Brandon Bays hefur skrifað þrjár bækur, The Journey, Freedom is og The Journey for Kids. Auk þess eru til CD diskar með ýmsum hugleiðslum og æfingum. Sjá nánar á heimasíðu thejourney.com
Hverjar erum við?
 Lena Otterstedt Lena Otterstedt
er hjúkrunarfræðingur að mennt. Lena lauk árs námi árið 2008 hjá Brandon Bays.
Lena er viðurkennd Journey Practitioner.
 Helga Erlingsdóttir Helga Erlingsdóttir
er hjúkrunarfræðingur að mennt. Helga lauk árs námi árið 2008 hjá Brandon Bays.
Helga er viðurkennd Journey Practitioner.
Við kynntumst Brandon Bays í Stokkhólmi í apríl 2007 og var það fyrsta námskeiðið sem við fórum á. Þetta var helgarnámskeið þar sem farið var í líkamsreisu og tilfinningareisu.
Í framhaldi af því ákváðum við að fara í allt námið sem tók 1 ár. Að námskeiði loknu skiluðum við inn 47 verkefnum til að fá viðurkenningu og réttindi til að starfa sem Journey Practitioner.
Um námskeiðin
Námið samanstendur af sjö mismunandi löngum námskeiðum, sem eru frá einum degi og upp í átta daga.
1. Fyrsta námskeiðið er Journey Intensive. Þar lærum við um tilfinningareisuna og líkamsreisuna og við fáum að fara sjálf í reisu og gera reisu með öðrum. Á helgarnámskeiðinu eru margir meðferðaraðilar sem aðstoða eftir þörfum.
2. Næsta námskeið er Advanced Skills, þar sem við fáum fleiri ‘verkfæri’ til að vinna með.
3. Reisa fyrir börn. Þar lærum við mismunandi aðferðir til að vinna með börnum.
4. Síðan kemur Abundance Retreat. Abundance þýðir allsnægtir og er unnið með gömul viðhorf og hugmyndir í tengslum við alsnægtir á öllum sviðum.
5. Áframhald er síðan 3 dagar í HCC, Healing with Conscious Communication, þar sem farið er í mismunandi styttri reisur eins og fælni, gömul heiti, sannfæringar o.fl.
6. No Ego, þar sem farið er í Enneagram sem samanstendur af 9 mismunandi persónumunstrum, þannig að við getum séð þau mismunandi munstur sem við erum föst í. Það gerið að við verðum meðvituð um þau og getum breytt.
7. Síðasta námskeiðið er Practitioners´ Training Week vika sem eingöngu er fyrir þá sem hafa farið í öll hin námskeiðin. Þar er farið í lífstilganginn og sérsniðnar reisur þar sem hægt er að setja saman úr öllum hinum reisunum þannig að það hentar hverjum og einum.
Journey Practitioner gráðan
Til að starfa sem viðurkenndur Journey Practitioner þarf að taka öll námskeiðin á einu ári, og skila inn 47 verkefnum.
Til að viðhalda menntuninni þarf einnig að mæta einu sinni á ári á helgarnámskeið og skila inn fimm verkefnum. Auk þess þarf að mæta á þriggja ára fresti á átta daga námskeið. Allt til að tryggja gæðin.
Sjá nánar á heimasíðunni thejourney.com
|