|
Helga Erlingsdóttir er hjúkrunarfræðingur og heilari.
Lena Otterstedt er hjúkrunarfræðingur, myndlistarmaður, heilari, tarot- og Aura-Soma® lesari.
Lena Otterstedt
Lena fæddist í Svíþjóð en ólst upp á Akureyri. Útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla Íslands árið 1971. Vann sem hjúkrunarfræðingur til ársins 1993 bæði innanlands og utan.
Eitt af hennar áhugamálum er myndlist.Hún hefur sótt nokkur námskeið í Myndlistarskóla Arnar Inga.
Litir og leikur að þeim kalla fram ákveðið flæði sem birtist á margvíslegan hátt í myndunum hennar. Hefur tekið þátt í eftirfarandi sýningum:
- Nemenda sýning í myndlistarskóla Arnars Inga
- Sýning í Landsbanka Íslands Akureyri í mai 2003
- Sýning í Landsbanka Íslands Akureyri í mai 2004
- Sýning í Tónlistarskóla Dalvíkur í mai 2004
- Sýning á Ólafsfirði í febrúar 2005
- Sýning í Landsbanka Íslands Akureyri í apríl 2005
Áhugi á andlegum málum hafa fylgt henni alla tíð. Hefur lesið í tarot spil síðan 1998, en það var ekki aftur snúið þegar hún komst í tæri við Aura-Soma, þessu yrði hún að kynnast betur. Það voru litirnir sem heilluðu.
Hún lauk fyrsta og öðrum áfanga í Aura-soma® í Noregi árið 2003 og þriðja áfanganum í Danmörku sama ár. Þá hefur hún sótt helgarnámskeið í notkun á ilmkjörnum og meistarakjörnum í Aura-Soma® skólanum í Danmörku.
Áhugi Lenu á andlegum málum leiddi hana á námskeið hjá Eldey Huld Jónsdóttur í DNA heilun árið 2004 og hefur starfað við það síðan.
Árið 2000 hóf hún í samvinnu við Helgu að búa til rúnir og hafa þær tvisvar farið á sýningu með þær til Danmerkur.
Helga Guðrún Erlingsdóttir
Helga er fædd og uppalin í Reykjavík. Útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla Íslands árið 1977 og hefur starfað nær óslitið síðan við hjúkrunarstörf. Dvaldist í Osló um tíma og fór í Statens Helsesösterskole og útskrifaðist þaðan 1982. Lauk námi frá Endurmenntunarstofnun HÍ í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu árið 1998
Helga hefur unnið innan og utan stofnunar og á ýmsum deildum innan sjúkrahúsa. Auk þess fengist við kennslu. Hefur búið á Akureyri undanfarin ár og starfar núna sem deildarstjóri á Öldrunarheimilinu Hlíð og er stundarkennari við HA. Hún á þrjú börn.
Helga hefur mikinn áhuga á andlegum málum og tekur þátt í starfi Ljósheima á Akureyri. Hefur auk þess farið á námskeið hjá Vianna Stibal og lært DNA heilun.
Árið 2000 hóf hún í samvinnu við Lenu að búa til rúnir og hafa þær tvisvar farið á sýningu með þær til Danmerkur.
|