Appelsínugulur

Líf mitt er fullt af tækifærum.
Ég er í tengslum við lífið og lifi því lifandi.
Ég kemst yfir hindranir mínar.
Forsíða arrow Rúnir
Rúnir Print Senda

ImageRúnir eru steinar ristir táknum sem geta sagt þér eitthvað um sjálfan þig. Rúnirnar eru eldri en Nýja Testamentið en hafa ekki verið í notkun í meira en 300 ár. Rúnirnar voru síðast í notkun á Íslandi á síðari hluta miðalda og gegndu svipuðu hlutverki og Tarot-spilin. Rúnin beinir huga þínum að þeim duldu öflum og hvötum sem hafa áhrif á og móta framtíð þína.

Rúnirnar vísa til forfeðra okkar víkinganna og þeirra hefða, þar sem rúnirnar voru notaðar sem ritmál og dulmál enda eru þær gjöf Óðins og háheilagar. Óðinn er æðstur norrænna goða og goðafræðin segir Óðinn hafa fundið rúnirnar í Aski Yggdrasils. Nafn hans þýðir vindur og andi og er hann hinn mikli rúnameistari. Víkingarúnirnar eru spegill æðra sjálfsins. Þær eru töfraleikur og helgileikur. Víkingarúnirnar eru 25 steinar sem við tínum í fjörum hér á landi og eru steinarnir sérstaklega orkumiklir og heilandi. Þeir eru úr íslenskri náttúru margra milljóna ára gamlir sem sjórinn ber að landi og koma steinarnir í fjöruna slípaðir og yndislegir viðkomu.

levels_202_x_240Með hverjum poka fylgir bæklingur sem inniheldur lýsingu á rúnunum. Bæklingarnir eru fáanlegir á 8 tungumálum, þannig að hver viðskiptavinur fær bækling á sínu tungumáli. Sérstaða pokanna er að engir tveir eru eins hvað varðar litasamsetningu og form. Leðrið sem við saumum pokana úr er bæði nýtt og notað, þannig að leðrið fær endurnýjaða lífdaga. Leðurpokarnir sem steinarnir eru í vísa einnig til víkingatímans því rúnameistarar þrettándu aldar höfðu töfrasteinana í leðurskjóðum.

rnir__diski_heimasa Sem minjagripur er varan ómetanleg tenging við forfeður okkar víkinganna. Rúnirnar eru táknkerfi sem á rætur sínar í okkar eigin meðvitund, þær eru véfrétt sem verður til í vestrænni hugsun. Allt þetta gerir víkingarúnirnar að sérstökum arfi okkar. Einnig eru rúnirnar ómissandi sem tæki til að fá heildarsýn yfir tiltekið málefni og nýtast á öllum sviðum mannlífsins, frá því helgasta til hins hagnýta. Rúnirnar færa þér andlega leiðsögn í amstri dagsins og geta hjálpað þér að ná fram skilningi sem býr í undirmeðvitund þinni. Það á vel við að nota sömu einkunnarorð fyrir rúnirnar og þau sem rituð eru yfir hliðinu að véfréttinni í Delfí:

Þekktu sjálfan þig.

Rúnirnar eru leiðbeinendur sem einnig er hægt að nota sem eins konar leik þegar fleiri eru samankomnir og er þá pokinn með rúnunum látinn ganga hringinn og hver dregur sína rún og myndast gjarnan miklar og skemmtilegar umræður í kjölfarið.

Víkingarúnir

Töfrar Rúnanna

Rúnirnar eru frá forfeðrum okkar og var notað bæði sem ritmál og dulmál. Það eru 25  fjörusteinar í pokanum og á þeim eru rúnatákn. Með hverjum poka fylgir bæklingur með rúnatáknunum og notkun þeirra.

Ráðfærðu þig við rúnirnar

  • Hugleiddu spurningu, málefni eða stöðu dagsins í dag.
  • Dragðu rún úr leðurpokanum sem inniheldur 25 fjörusteina.
  • Á steinunum er tákn.
  • Lestu túlkun táknsins.
  • Íhugaðu svarið.

Rúnin gefur vísbendingu en valið er ávallt þitt.
Hægt er að fá bækling á dönsku, ensku, frönsku, íslensku, ítölsku, norsku, sænsku og þýsku.

 
untitled-1_copy
 
rnaskja_0_heimasa
25 steinar í poka

25 steinar í skjóðu

 



 
© 2012 Lena Otterstedt - rúnir - aura soma - myndir -
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.