Grænn

Ég er örugg í nýjum aðstæðum.
Ég hef nægan tíma.
Ég samþykki sjálfan mig eins og ég er.
Forsíða arrow Aura-Soma
Um Aura-Soma® Print Senda

Leið til aukins þroska

Leið til aukins þroska

 Aura-Soma® er spegill sálarinnar

Aura-Soma er litameðferð og sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að litir hafa djúpstæða verkun á líkamlega, andlega og sálarlega líðan. Hver litur hefur tiltekna bylgjulengd og orku sem hefur áhrif á líkama, huga og sál. Val þitt á litum bendir til þeirra auðlinda og krafta sem búa innra með þér. Þú ert þeir litir sem þú velur, vegna þess að aðdráttarafl þitt gagnvart ákveðnum litum er endurspeglun á innri vitund þína - þína sálarlegu vitund.

Talið er að líkamlegir, tilfinningalegir og andlegir kvillar hafi verið meðhöndlaðir með birtu og litum til forna. Einnig er Aura-Soma tengd ævagamalli visku, eins og t.d. kabbalafræðunum ( Lífsins tré ), tarot og I Ching og litirnir tengjast orkustöðvum hindu kerfisins.

Tilgangur Aura-Soma er að hjálpa þér að öðlast jafnvægi á öllum sviðum og gefa þér stuðning/leiðsögn á leið þinni til aukins sjálfsþroska.

ImageOrðið Aura-Soma á rætur í grísku, aramísku og sanskrít og þýðir “ljós sem birtist gegnum lifandi orku” vegna þess að aura er sveifla, straumar af litum sem umlykur og smýgur í gegnum líkamann og soma þýðir líkami/orka.

Hvernig virkar Aura-Soma®?

Aura-Soma speglar þitt innra eðli. Þú velur fjórar jafnvægisflöskur sem heilla þig mest. Hver litur hefur sína túlkun og val þitt getur því sagt þér til um möguleika þína, áskoranir, hæfileika og þarfir. Litaval þitt geta hjálpað þér að finna tilgang þinn og markmið í lífinu.

Aura-Soma er eins og áður sagði samsett úr litum-, plöntum- og kristallaorku og það er liturinn sem er grunnurinn. Litirnir eru því bergmál þess hver við erum.

Hvernig unnið er með Aura-Soma®

Það er hægt að vinna með flöskurnar samhliða stjörnuspeki, talnaspeki og tarot svo tekin séu nokkur dæmi. Ég tengi saman flöskurnar og tarotspilin.

Sem dæmi um aðrar leiðir má nefna t.d. að yogakennarar, nuddarar og þeir sem stunda heilun nota meistarakjarna og ilmkjarna við störf sín. pomander-2

Hugmyndafræði Aura-Soma®

1.    Aura-Soma gengur út frá því að sérhver einstaklingur er ljósvera í öllum regnbogans litum.

2.    Þeir litir sem þú velur eru hluti af þér og endurspegla þínar þarfir. Með litavalinu getur þú gert þér grein fyrir því sem er raunverulegt og því sem er djúpt innra með þér.

3.    Þinn eigin leiðbeinandi er innra með þér. Við erum okkar eigin sérfræðingar því enginn þekkir okkur betur en við sjálf. Sál þín sem er innra með þér, er leiðbeinandi þinn og hún getur talað beint við þig, milliliðalaust, með tungumáli litanna.

4.    Aura-Soma er verkfæri sem við getum notað til að stuðla að framþróun okkar eigin meðvitundar. Framþróun sálarinnar á sér stað þegar við smám saman vöknum til æðri vitundar. Aura-Soma snýst fyrst og fremst um framþróun vitundarinnar. Sérhver flaska í kerfinu er lykill að ákveðnu vitundarástandi.

5.    Litirnir í Aura-Soma eru ekki valdir fyrir þig, þú velur þá sjálf/ur. Grundvallaratriði í Aura-Soma er að læra að þekkja sjálfa/an sig með vali á jafnvægisflöskunum. Sérhver einstaklingur velur fyrir sig. Þetta eflir einstaklinginn vegna þess að þetta hvetur hann til að taka ábyrgð á velferð sinni og gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem hann hefur.

6.    Í Aura-Soma koma tillögur um litaval ekki frá Aura-Soma sérfræðingnum, heldur velur hver einstaklingur litina. Hlutverk Aura-Soma sérfræðingsins er að staðfesta og útskýra það besta í hverjum einstaklingi með túlkun á þeim litum sem valdir eru. Með þessu er hverjum og einum hjálpað til að þekkja sjálfan sig með litunum. Hlutverk sérfræðingsins er að hjálpa einstaklingnum í þessu ferli sem leiðir til betri sjálfsþekkingar. Í þessu ferli getum við uppgötvað það sem við raunverulega erum og til hvers við komum hingað

7.    Aura-Soma greinir ekki og meðhöndlar ekki heilsufarsvandamál, hvorki líkamleg né geðræn. Aura-Soma setur ekki fram neinar fullyrðingar um virkni Aura-Soma í þá átt að leysa heilsufarsleg vandamál.

 

floskur_samsett_1

Hvað er í boði?

Fyrirlestur fyrir stærri hópa

Ég segi frá hvað Aura-Soma® er, uppruna þess og hvernig litir og ilmur vinna með okkur og í okkur.

Ég mun raða upp öllum jafnvægisflöskunum sem eru í dag 106 talsins og þið fáið að prófa einn eða fleiri af ilmkjörnunum, ásamt því að koma með spurningar.Fyrirlesturinn er u.þ.b. 1- 1 1/2 klst.

Fyrirlestur fyrir smærri hópa

Einnig er ég með fyrirlestur fyrir smærri hópa. Auk fyrirlestursins fær hver einstaklingur að velja eina jafnvægisflösku sem ég mun túlka fyrir viðkomandi. Hámarksfjöldi 8-10 manns.

Einkatímar

Túlkun lita með Aura-Soma flöskum og leiðsagnalestur í tarot spil. Ég vinn með flöskurnar og tarot spilin samhliða. Viðkomandi velur fjórar flöskur og út frá þeim er hægt að segja til um stöðuna þína í deginum í dag, hvað þú ert að takast á við og hvert þú ert að stefna.

Aura-Soma® er skrásett vörumerki Aura-Soma Ltd.

 
© 2010 Lena Otterstedt - rúnir - aura soma - myndir -
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.