|
Litir ljóssins / Litaspjald barnsins
Dagana 22.
- 24. júni kemur Rickie Hilder frá Ástralíu og heldur námskeið í
sjálfsstyrkingu og auknum þroska.
Rickie er
lærður Aura-Soma® kennari og er með diplóma í ráðgjöf og samskiptum.
Hún hefur skrifað bók sem heitir The Child's Palette. Hún hefur haldið námskeið
víða í Evrópu, Asíu, USA auk síns heimalands. Síðastliðið sumar hélt hún
samskonar námskeið hér á Akureyri. Á námskeiðinu voru einstaklingar með ýmsan
bakgrunn m.a. foreldrar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, kennarar, yogakennarar,
svæðanuddarar og fleiri.
Umsögn nokkra
nemenda:
Nemandi
1: „Mikil
vinna, en er þess virði að leggja á sig. Hjálpaði mér að losa um hindranir svo
nú er ég frjálsari".
Nemandi
2: „Dýpkaði
þekkinguna á sjálfri mér, hver ég er, hverjar tilfinningar mínar og hvers ég
þarfnast í dag".
Nemandi
3: „Það sem
stendur upp úr hjá mér er að láta hjartað ráða í stað hugans. Hjálpaði mér að
opna hjarta mitt gagnvart öðrum og skilja aðra betur".
Nemandi
4: „Hjálpaði
mér að losa út mikla reiði og upplifði mikinn létti. Þetta
hjálpaði mér að sjá munstur fjölskyldunnar út frá systkinaröð og sjá betur hvað
ég er að takast á við í deginum í dag".
Nemandi
5: „Hjálpaði
mér að horfast í augu við djúpan ótta sem ég hef haft í mörg ár. Upplifði mikla
gleði og frið eftir námskeiðið".
Á
námskeiðinu notar hún Aura-Soma® litaflöskur. Nánari upplýsingar um Rickie
er að finna á heimasíðu hennar: http://chilli.net.au/~kwanyin/
Á
námskeiðinu er m.a. fjallað um:
-
fjölskylduna og hlutverk barnsins innan hennar
-
venjur og munstur frá barnæsku sem við erum föst í
-
fjölskyldugerðir og samskipti
-
hvernig við náum tengingu við okkar raunverulega sjálf og
öðlumst skilning á því hver við erum
Fyrir
hverja
Námskeiðið
er fyrir alla sem bera umhyggju fyrir sjálfum sér.
Fjöldi
þátttakenda er takmarkaður við 20.
Dagsetning
22.-24.
júní, kennt verður frá kl.10 til ca. 17.30.
Staður
Kennt
verður í húsi Náttúrulækningafélagsins í Kjarnaskógi við Akureyri.
Verð
Námskeiðsgjald
er 261 evrur og 15.000 kr.
Staðfestingagjald
er 15.000 kr. og greiðist 1. maí.
Innifalið
í verði er kaffi/te í pásum og síðdegishressing alla dagana.
Upplýsingar
og skráning er hjá
Lenu
Otterstedt sími 4621048 eða
Denne e-mailadresse bliver beskyttet mod spambots, du skal have Javascript aktiveret for at se den
Spennandi námskeið
Hlökkum
til að sjá þig
|